Um Visteyri.

Velkomin á Visteyri! Visteyri er glænýtt markaðstorg sem hefur svo sannarlega vantað í langan tíma!

Markmiðið okkar er að gera öllum kleift að kaupa og selja notaðan fatnað og heimilismuni á einfaldan og öruggan hátt. Þannig hlífum við jörðinni okkar við óþarfa framleiðslu á nýjum vörum. Við viljum taka þátt í baráttunni gegn ofneyslu með því að stuðla að hringrásarhagkerfi og trúum því að viðskipti með notað sé lykillinn að sjálfbærari heimi. Er eitthvað skemmtilegra en að finna flíkur eða heimilismuni frá uppáhalds vörumerkinu sínu sem er bæði ódýrari og keypt á umhverfisvænni hátt? 🛍️

Það kostar ekkert að skrá sig á Visteyri og byrja að selja eða kaupa, en það er gert með örfáum skrefum. Það er einfalt og öruggt að ganga frá greiðslum og bæði hægt að sækja og fá vörur sendar hvert á land sem er. Visteyri er því fullkominn vettvangur til að versla vörur á ódýrari og umhverfisvænni hátt eða hagnast á því að gefa eigum þínum lengra líf ♻️ 💸

Við viljum að Visteyri sé vettvangur sem gerir öllum kleift að gefa notuðum vörum lengri líftíma, jafnvel komið eigin hönnun, vörum eða vörumerki á framfæri og nálgast vinsæl vörumerki á umhverfisvænni og hagkvæmari hátt, allt á einum stað! Við hlökkum til að sjá allar fallegu flíkurnar og hlutina sem þig langar að gefa lengra líf! 🫶🏼

Byrja að selja

Söluferlið á Visteyri

1.

Stofna aðgang

Þú stofnar aðgang með netfangi.

2.

Selja vöru

Þú setur vöru á sölu í nokkrum einföldum skrefum.

3.

Senda

Þegar varan selst pakkar þú henni og sendir til kaupanda.

4.

Fá greitt

Þú færð greitt þegar varan hefur skilað sér.